top of page

Skilmálar Míní Lúx

Upplýsingar um Míní Lúx

Míní Lúx ehf. rekur vefverslunina Míní Lúx.  Kennitala Míní Lúx ehf er 541118-3140.  Aðsetur Míní Lúx er í Kleifakór 20, 203 Kópavogi.  Hægt er að hafa samband símleiðis mánudaga til föstudaga kl. 9:00-14:30  í síma  .+46 7686 12649  Hægt er að senda tölvupóst á minilux@minilux.is.

 

Míní Lúx áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. ef rangar verðupplýsingar væru inná vefnum eða ef Míní Lúx þarf að hætta að bjóða upp á ákveðnar vörutegundir fyrirvaralaust. 

Verð á vörum og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk.  Sendingarkostnaður er 990 kr. og sú upphæð bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Sé verslað fyrir meira en 15.000 kr. er sendingarkostnaður innifalinn.

Pantanir

Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir að greiðsla hefur borist.

Þegar búið er að greiða fyrir vöru berst kaupanda staðfesting í gegnum tövupóst sem gefinn var upp í kaupferli.  Það er á ábyrgð kaupandans að allar umbeðnar upplýsingar séu rétt út fylltar. Við upphaf pöntunnar fyllir kaupandi út upplýsingar um nafn, heimilisfang og tölvupóstfang.

 

Ef til þess kæmi að pöntuð vara væri ekki til á lager og greiðsla hjá viðskiptavin hefur verið innheimt verður upphæðin samstundis endurgreidd eða fundin eitthver sameiginleg niðurstaða milli kaupanda og seljana.  Ef valið er að greiða með millifærslu þá helst varan í sólarhring fyrir viðskiptavin, ef viðskiptavinurinn er ekki búin að millifæra andvirði vörunnar innan þess tíma þá er pöntun ógild.

Afhending

Hægt er að velja um að fá vöruna senda með pósti eða varan sé sótt að Hlíðasmára 3, 201 Kópavogi (Cafe Atlanta ), næsta virka dag eftir pöntun hefur verið framkvæmd og greidd. Hægt er að sækja vöruna að Hlíðasmára 3 mánudaga til föstudaga kl. 9:00-14:30.  Ef valið er að fá vöru senda ætti tími frá pöntun til afhendingar að vera 2-5 virkir dagar, að því gefnu að vara sé til á lager. 

 

Af öllum pöntunum sem dreifðar eru af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.  Míní Lúx ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.  Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Míní Lúx til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilaréttur

Kaupandinn hefur 14 daga skilafrest með því skilyrði að hann hafi ekki byrjað að nota vöruna.  Ef skila á vörunni þarf hún að vera í sama ásigkomulagi og hún var keypt í, í upprunalegum umbúðum og kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.  Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.  Við skil á vöru er miðað við upprunalegt kaupverð vörunnar.  ATH. Útsölu/tilboðs vörum fást ekki skilað.  Ef öll ofangreind skilyrði eru uppfyllt þá fær kaupandinn annað hvort að skipta vörunni fyrir aðra vöru eða fær inneignarnótu. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi.  Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. 

 

ATH. Að skilafresturinn tekur gildi þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.  Áður en varan er send frá kaupanda þá þarf að senda tölvupóst á minilux@minilux.is þar sem galli vörunnar eða ósk kaupandans er skilgreindur.  Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við meðfylgjandi sendingarkostnað (ef eitthver var) eða endurgreiðum vöruna ef þess er krafist.

Trúnaður og Lög

Míní Lúx heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.  Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög.  Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Greiðslumöguleikar

Hægt er að greiða með millifærslu og greiðslukorti (Visa og Mastercard)

Millifærsluupplýsingar: Kt: 541118-3140. Reiknings nr: 0537-26-541118.

Mastercard-logo.png
Visa-logo.png
iconfinder_00-ELASTOFONT-STORE-READY_com

Millifærslur

Míní Lúx vill bjóða viðskiptavinum sínum bestu þjónustu sem völ er á og því hvetjum við ykkur að hafa samband ef þið teljið eitthvað megi betur fara og við hjálpumst að við að finna góða lausn. Best er að hafa sambnd í gegnum tölvupóst, minilux@minilux.is.

bottom of page